
- This event has passed.
DARTUNG 2 – Skráning hafin
26. March kl. 10:00 - 16:00

Íslenska Pílukastsambandið kynnir með stolti DARTUNG, Unglingamótaröð ÍPS og PingPong.is í pílukasti 2023.
DARTUNG 2 verður haldið sunnudaginn 26. mars 2023 hjá Pílufélagi Grindavíkur, Austurvegi 1, Grindavík. Húsið opnar 10:00 og keppni hefst kl. 11:00
Allir pílukastarar á aldrinum 9-18 ára (fæddir 2005-2014) geta tekið þátt í þessari mótaröð en spiluð verða 4 mót á árinu 2023. Stig verða gefin fyrir árangur og 12 mánaða rúllandi stigalisti mun halda utan um árangur allra keppenda. Dagsetningar allra umferða má finna á viðburðasíðu dart.is
Mótaröðin verður aldurs- og kynjaskipt ef næg þátttaka fæst og spilaðir verða riðlar + útsláttur.
DARTUNG 2 verður skipt í aldurshópana 9-13 ára og 14-18 ára. Miðað er við árið og eru því allir krakkar sem eru orðnir 9 ára á árinu velkomnir og unglingar sem verða 18 ára á þessu ári fá einnig þátttökurétt á mótaröðinni. Mótaröðin verður sýnd í beinni útsendingu á heimasíðu ÍPS www.dart.is
Stig verða gefin fyrir árangur í mótunum og verða þau sem hér segir:
1 sæti: 30 stig
2 sæti: 20 stig
3.-4. sæti: 15 stig
5.-8. sæti: 10 stig
9.-16. sæti: 5 stig
Skráning er hér fyrir neðan og lýkur skráningu föstudaginn 24. mars kl. 18:00. Ekkert kostar að taka þátt í DARTUNG mótaröðinni árið 2023 og ekki er gerð krafa að keppendur séu skráðir í aðildarfélag.
Skráningu er lokið
Skráðir keppendur
Stúlkur 13 ára og yngri
# | Nafn | Fæðingarár |
---|---|---|
1 | Guðfinna Sara Arnórsdóttir | 2013 |
2 | Þórdís Etna Þórarinsdóttir | 2012 |
3 | Linda Björk Atladóttir | 2013 |
# | Nafn | Fæðingarár |
Drengir 13 ára og yngri
# | Nafn | Fæðingarár |
---|---|---|
1 | Gísli Galdur Jónasson | 2013 |
2 | Kristján Máni Magnússon | 2010 |
3 | Magnús Kári Ægisson | 2010 |
4 | Kári Vagn Birkisson | 2011 |
5 | Baltasar Breiðfjörð | 2012 |
6 | Axel James Wright | 2012 |
# | Nafn | Fæðingarár |
Stúlkur 14 til 18 ára
# | Nafn | Fæðingarár |
---|---|---|
1 | Andrea Margrét Davíðsdóttir | 2009 |
2 | Birna Rós Daníelsdóttir | 2007 |
3 | Emilia Rós Hafdal Kristinsdottir | 2007 |
# | Nafn | Fæðingarár |
Drengir 14 til 18 ára
# | Nafn | Fæðingarár |
---|---|---|
1 | Sveinbjörn Runólfsson | 2008 |
2 | Ottó Helgason | 2005 |
3 | Snæbjörn Þorbjörnsson | 2007 |
4 | Gunnar Guðmundsson | 2005 |
# | Nafn | Fæðingarár |