Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

NOVIS deildin – 3. umferð (Lokið)

25. March 2023 - 26. March 2023

ATH! 3. umferð fer fram á laugardegi 25. mars í Reykjavík en sunnudaginn 26. mars á Akureyri!

Um Novis deildina

3. umferð NOVIS deildarinnar er ein mikilvægasta umferð ársins, en þá tryggja allt að 13 pílukastarar sér sæti í Úrvalsdeild Stöð 2 Sport.  Í 3. umferð taka einnig í gildi nýjar reglur um NOVIS deildina sem er hægt að kynna sér hér.   

Helstu breytingarnar eru að ekki verður lengur raðað í Gulldeild RVK eftir meðaltali heldur eingöngu eftir stöðu leikmanna í Gull og Silfurdeildum.  Önnur breyting er að meðaltal leikmanna verður ekki lengur 0 eftir 3. umferð ef leikmenn sleppa umferðum. Þess í stað lækkar meðatal um 5% fyrir hverja sleppta umferð.

NOVIS deildin er fyrir alla pílukastara sem hafa gilda skráningu í einu af aðildarfélögum sambandsins. Ef þú ert ekki núþegar skráð/ur í aðildarfélag þá getur þú gert það með því að fylla út skráningu í ÍPS hér. (ATH þetta er ekki skráning í NOVIS deildina, hún er neðst á þessari síðu.)

NOVIS deildin er hönnuð fyrir pílukastara á öllum sviðum íþróttarinnar. Deildirnar eru settar þannig upp að þú færð marga keppnisleiki og flesta við leikmenn með svipað getustig. Það skiptir ekki máli hvort þú stefnir á að keppa fyrir landslið Íslands eða ert að taka þín fyrstu skref í pílukasti, þú færð alltaf að keppa við jafninga í íþróttinni og því undir þér komið hvað þú vilt ná langt. (ATH þeir sem eru að skrá sig í fyrsta skipti eða eru að skrá sig aftur eftir að hafa tekið amk 2 umferðir í hlé gætu lent á móti leikmönnum sem eru ekki með svipað getustig.)

Staðsetning, fyrirkomulag og reglur

3. umferð verður haldin laugardaginn 25. mars nk. á Bullseye, Snorrabraut 34.  Keppni í Norðuausturdeild NOVIS verður haldin sunnudaginn 26. mars nk. í aðstöðu Píludeildar Þórs að Laugargötu 4, Akureyri. Leikir í öllum deildum hefjast kl. 10:30 en húsið opnar kl. 09:00. Staðfesta þarf skráningu á staðnum amk. 45 mín fyrir upphaf allra deilda.  Ef skráning verður mikil gæti þurft að spila einhverjar deildir í aðstöðum pílufélaga sambandsins.

Fjöldi deilda fer eftir skráningu hverju sinni. Hámarksfjöldi í hverri deild eru 9 manns. Ef skráningar ná ekki uppí 9 keppendur í allar deildir fyrir ákveðna umferð þá gæti þurft að breyta fjölda í hverri deild í þeirri umferð en ávallt verður reynt að hafa 7-9 manns í hverri deild í hverri umferð.

Spilað verður 501, best af 7 leggjum í þremur efstu deildum í karlaflokki en best af 5 leggjum í öðrum deildum. Í öllum kvennadeildum er einnig spilað best af 5. Í Norðausturdeild NOVIS er spilað best af 7 leggjum í efstu deild en best af 5 í öðrum deildum. Allir spila við alla einu sinni og er gefið 1 stig fyrir sigur í hverjum leik. Sigurvegarar hverrar deildar verða krýndir að hverri umferð lokinni og fá þau að launum glæsilegan verðlaunapening. Þeir keppendur sem lenda í tveimur efstu sætum hverrar deildar tryggja sig upp um amk. eina deild og þeir keppendur sem lenda í tveimur neðstu sætum hverrar deildar í úrslitaumferðinni falla niður um amk. 1 deild.

Nánari upplýsingar og regluverk NOVIS deildarinnar má sjá með því að smella HÉR

Keppendum verður raðað í deildir útfrá meðaltali síðustu tveggja umferða. Þeir keppendur sem ekki tóku þátt í síðustu tveimur umferðum hefja leik í neðstu deild. Meðaltal keppanda eftir 2. umferð, efstu tveir keppendur í öllum deildum sem hafa tryggt sig upp um amk eina deild og þeir tveir keppendur sem falla niður um amk eina deild og breytingu á meðaltali á milli umferða má sjá hér að neðan.

Úrslit 2. umferðar 2023

Heildarmeðaltal NOVIS deildarinnar 2023  

Skráning & greiðsla

Skráning er hafin og ATH! skráningarfrestur er nú til kl. 18:00, miðvikudaginn 22. mars 2022. Hægt er að skrá sig með því að fylla út formið hér að neðan. Skráning er ekki gild fyrr en búið er að greiða þátttökugjald. Ef þátttökugjald er ekki greitt á réttum tíma bætist við 500kr refsigjald.

Þátttökugjald er 3.500 kr. og er eingöngu hægt að millifæra á: Kt. 470385-0819  Reikningsnúmer: 0301-26-014567 Vinsamlegast sendu kvittun fyrir greiðslu á dart@dart.is

Ef þú átt inneign og vilt nýta hana sendu okkur póst á dart@dart.is. Hægt er að skoða inneignarstöðuna HÉR

Reglur um afskráningu í mótum ÍPS, endurgreiðslur og inneignir er hægt að skoða HÉR 

 

Details

Start:
25. March 2023
End:
26. March 2023
Event Categories:
,

Venue

Bullseye
Snorrabraut 37
Reykjavík, Austurbær 105 Iceland
+ Google Map
Phone
4546000
View Venue Website