Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Íslandsmótið í Cricket 2023

3. June 2023 - 4. June 2023

Íslandsmótið í Cricket verður haldið í aðstöðu Píludeildar Þórs á Akureyri helgina 3 – 4. júní 2023. Þátttökurétt hafa allir skráðir félgasmenn aðildarfélaga ÍPS. Keppt verður í karla- og kvennaflokkum í einmenning og tvímenning og dregið verður af handahófi í alla riðla.

Laugardagurinn 3. júní
Riðlakeppni og útsláttur í tvímenning karla og kvenna. Húsið opnar kl. 09:00. Fyrstu riðlar byrja að spila kl. 10:30. Best af 5 í riðlum.  Staðfesta þarf skráningu hjá mótstjórn að lágmarki 45 mín fyrir upphaf riðlakeppni.

Sunnudagur 4. júní
Riðlakeppni og útsláttur í einmenning karla og kvenna. Húsið opnar kl. 09:00. Staðfesta þarf mætingu hjá mótstjórn að lágmarki 45 mín fyrir upphaf mótsins. Fyrstu leikir í riðlum byrja kl. 10:30. Best af 5 í riðlakeppni. Best af 7 í útslætti fram að undanúrslitum en þar er spilað best af 9.  Úrslitaleikir eru best af 11.

Skráning og greiðsla:

Skráning er hafin og skráningarfrestur er til kl. 18:00, fimmtudaginn 1. júní 2023.  ATH! sitthvort skráningarformið er fyrir einmennings- og tvímenningskeppni. Skráning er ekki gild fyrr en búið er að greiða þátttökugjald. Ef þátttökugjald er ekki greitt á réttum tíma bætist við 500kr refsigjald.

Þátttökugjald er 4.000kr. á mann í einmenningskeppni og 4.000 kr. á lið í tvímenningskeppni og er eingöngu hægt að millifæra á: Kt. 470385-0819 Reikningsnúmer: 0301-26-014567

Ef þú átt inneign og vilt nýta hana sendu okkur póst á dart@dart.is. Hægt er að skoða inneignarstöðuna HÉR

Reglur um afskráningu í mótum ÍPS, endurgreiðslur og inneignir er hægt að skoða HÉR

Skráðir keppendur:  Einmenningur  |  Tvímenningur

 

Skráning í einmenning (sunnudagur)

Skráningu er lokið


 

Skráning í tvímenning (laugardagur)

Skráningu er lokið

 

Details

Start:
3. June 2023
End:
4. June 2023
Event Categories:
,

Venue

Píludeild Þórs (PÞ)
Laugargata 2-4
Akureyri, 600 Iceland
+ Google Map