6. umferð Floridana mótaraðarinnar fer fram á morgun, sunnudaginn 13. september.

Keppt verður á þremur stöðum að þessu sinni – í húsnæði PFR, á Bullseye og hjá Píludeild Þórs á Akureyri.

Húsin opna kl. 09:00 en keppni hefst:
• Kl. 10:30 á Bullseye og hjá PFR
• Kl. 10:00 hjá Píludeild Þórs á Akureyri

Hér fyrir neðan má sjá áætlaða riðlaskiptingu fyrir 6. umferðina.
Á Bullsey fara fram Kristalsdeildin, Gulldeild karla og kvenna, silfurdeild karla og bronsdeild karla.
Hér má sjá riðlaskiptinguna á Bullsey.


Fram undan er spennandi keppnisdagur og verður gaman að fylgjast með baráttunni. Það verða streymi í boði frá öllum keppnisstöðum.
Gangi öllum keppendum vel.