Sjöunda umferð Floridana mótaraðarinnar fer fram á morgun, sunnudaginn 25. október, og má búast við spennandi keppni þegar pílukastarar mæta aftur til leiks í baráttunni um mikilvæg stig í mótaröðinni.
Keppt verður á þremur stöðum að þessu sinni – í húsnæði Pílukastfélags Reykjavíkur (PFR), á Bullseye og hjá Píludeild Þórs á Akureyri.
Húsin opna kl. 09:00 en keppni hefst:
Kl. 10:30 á Bullseye og hjá PFR
Kl. 10:00 hjá Píludeild Þórs á Akureyri
Riðlaskipting 7. umferðar
Hér fyrir neðan má sjá áætlaða riðlaskiptingu fyrir 7. umferð Floridana mótaraðarinnar.
Á Bullseye fara fram keppnir í Kristalsdeild, Gulldeild karla og kvenna, Silfurdeild karla og Bronsdeild karla.
Hér fyrir neðan má sjá áætlarðar riðlaskiptingar í húsnæði PFR og á Bullseye.


Hér má sjá áætlaða riðlaskiptingu í aðstöðu píludeildar Þórs í Laugargötu.

Spennandi keppnisdagur fram undan
Nú þegar líður á mótaröðina verða stigin sífellt mikilvægari og keppendur munu án efa leggja allt í sölurnar til að bæta stöðu sína.
Það verður því spennandi að fylgjast með baráttunni í öllum deildum og sjá hverjir ná að standa uppi sem sigurvegarar dagsins.
Streymt verður frá öllum þremur keppnisstöðum, þannig að áhugasamir geta fylgst með keppninni þótt þeir komist ekki á staðinn.
Við óskum öllum keppendum góðs gengis og hvetjum pílufólk til að mæta á keppnisstaðina, fylgjast með og styðja við keppendur!
Góða skemmtun!

