Skráning í 7. umferð Floridana mótaraðar sem fer fram sunnudaginn 25. október er í fullum gangi og nú fer hver að verða síðastur að tryggja sér sæti! Skráningarfrestur rennur út fimmtudaginn 22. október kl. 18:00.
Það stefnir í spennandi keppni þegar pílukastarar mæta aftur til leiks í Floridana mótaröðinni. Keppnin hefur boðið upp á skemmtilegar viðureignir, góða stemningu og harða baráttu um dýrmæt stig í deildunum.
Nú er komið að sjöundu umferð og hvert stig getur skipt miklu máli þegar líður á mótaröðina. Það er því um að gera að láta sig ekki vanta!
ÍPS hvetur alla keppendur til að ganga frá skráningu tímanlega og minna jafnframt félaga sína á að skrá sig áður en fresturinn rennur út.
Mikilvægar upplýsingar
Mót: Floridana – 7. umferð
Skráningarfrestur: Fimmtudagur 22. október kl. 18:00
Skráning: Á dart.is
Húsið opnar: 09:00 keppni hefst á Akureyri kl.10:00 en í Reykjavík kl.10:30
Keppnisstaðir: Bullseye, PFR og hjá píludeild Þórs Akureyri í Laugargötu.
Ekki bíða fram á síðustu stundu – tryggðu þér sæti í Floridana 7 og vertu með í baráttunni!
Sjáumst við píluspjaldið! 🎯

