Við minnum á skráningarfrestinn í Iceland OPEN/MASTERS 2026 sem rennur út fimmtudaginn 3. september 2026 kl 18:00.
Iceland OPEN/MASTERS 2026 verður haldið í Ljónagryfjunni, Njarðvík
Ekki gleyma að skrá þig
SKRÁNING OG ÞÁTTTAKA
- Skráningu lýkur 3. september kl. 18:00 GMT.
- Aldurstakmark: leikmenn fæddir 2013 eða síðar mega ekki taka þátt.
- Dregið er samdægurs, 45 mínútum fyrir mót. Aðeins leikmenn sem hafa skráð sig tímanlega hjá mótsstjórn eru með.
- Innifalið í þátttökugjaldi er 4 USD WDF Player Levy sem rennur til lyfjaeftirlits og starfsemi WDF.
- Keppendur yngri en 18 ára þurfa að vera í fylgd foreldris eða forráðamanns á mótinu.

REGLUR
- Mótið fer fram samkvæmt reglum WDF, þar á meðal lyfjareglum WDF.
- Gallabuxur og buxur eða pils úr denim eru bönnuð á sviðsborði. Sama gildir um denim-líkan fatnað úr flaueli og íþróttagalla.
- Leikmönnum er óheimilt að koma með eigin mat eða drykki inn á keppnissvæðið. Brot leiðir til brottvísunar úr keppni.
- Stig fara á heimslista WDF (Silver og Bronze stig).
Nánari upplýsingar veitir Íslenska Pílukastsambandið: dart@dart.is
