Fyrsta Íslandsmót félagsliða U18 í pílukasti fór fram um helgina og var þar skrifaður nýr kafli í sögu yngri flokka íslensks pílukasts. Fimm félög tóku þátt og var keppt í tvímenningi, einmenningi og liðakeppni, þar sem stig úr öllum keppnisgreinum lögðust saman í heildarkeppni félaganna.
Mikil og skemmtileg keppni var alla helgina og ljóst frá upphafi að hvert stig gæti skipt máli í lokauppgjörinu.
Að loknum fyrri keppnisdegi hafði Píludeild Þórs forystu með 153 stig. PFR og PFK komu þar næst með 141 stig hvort, PKS var með 120 stig og PFA 38 stig.
Liðakeppnin fór síðan fram á lokadeginum og þar styrkti Píludeild Þórs stöðu sína enn frekar. Þórsarar söfnuðu 100 stigum í liðakeppninni og tryggðu sér þar með fyrsta Íslandsmeistaratitil félagsliða U18.
Lokastaða mótsins varð:
Píludeild Þórs – 253 stig
PKS – 216 stig
PFR – 193 stig
PFK – 185 stig
PFA – 50 stig
Fjöldi keppenda átti frábært mót. Í tvímenningi voru Marel og Ægir úr PFR stigahæsta parið með 42 stig og Marel var jafnframt stigahæstur í einmenningi með 28 stig.

Í stúlknaflokki var Hrefna úr Píludeild Þórs stigahæst í einmenningi með 21 stig. Hún lét einnig að sér kveða í tvímenningnum þar sem Hrefna og Rakel úr Píludeild Þórs náðu bestum árangri stúlknapara með 30 stig.

Í liðakeppninni náði Þór 1 bestum árangri með 60 stig.
Mótið sýndi vel þá miklu grósku sem er í unglingastarfi innan íslensks pílukasts. Fjöldi efnilegra keppenda tók þátt og var bæði keppnisgleði og metnaður áberandi alla helgina.
ÍPS óskar Píludeild Þórs innilega til hamingju með fyrsta Íslandsmeistaratitil félagsliða U18 og óskar jafnframt öllum keppendum til hamingju með árangurinn. ÍPS þakkar félögum, foreldrum, sjálfboðaliðum og öðrum sem komu að framkvæmd mótsins fyrir vel heppnaða keppnishelgi.
Framtíð íslensks pílukasts er svo sannarlega björt.

