Pílukast verður hluti af Reykjavík International Games en mótið í ár verður haldið á þremur stöðum. Riðlakeppni fer fram föstudagskvöldið 26. janúar í aðstöðu PFR að Tangarhöfða 2 (hjá PFH/PFK líka ef þátttaka verður mikil) en útsláttarkeppni verður spiluð laugardaginn 27. janúar á Bullseye frá 10:30 - 15:00. Undanúrslitaleikir í karlaflokki og úrslitaleikir í karla- og kvennaflokki verða síðan í sal 3 í nýju Laugardalshöllinni og í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport frá kl. 19:30 og verður alvöru Ally Pally stemning í salnum!
Dagskrá:
Föstudagur 26. janúar
Riðlakeppni karla og kvenna. Spilafyrirkomulag verður gefið út eftir að skráningu lýkur. PFR opnar kl. 17:00 og byrjað verður að spila kl. 19:00. Staðfesta þarf skráningu á staðnum amk. 45 mín fyrir upphaf riðils.
Laugardagur 27. janúar
Útsláttarkeppni karla og kvenna. Spilafyrirkomulag verður gefið út síðar. Húsið opnar kl. 09:00 og byrja fyrstu leikir í útslætti kl. 10:30.
Þátttökugjald er kr. 4.000 og er eingöngu hægt að greiða með millifærslu:
kt. 470385-0819
rn. 0301-26-014567
Skráningar- og greiðslufrestur er til fimmtudagsins 25. janúar kl. 18:00.
ATH! Miðasala á úrslitakvöldið í Laugardalshöllinni er hafin og er aðgangseyrir einungis 1.000kr og fylgir drykkur með hverjum seldum miða. Allur ágóði af miðasölu á úrslitakvöldið mun renna til Björgunarsveitarinnar Þorbjarnar í Grindavík. Takmarkaður fjöldi miða verður í boði og því mikilvægt að tryggja sér miða strax!
Hægt er að kaupa miða hér: https://www.corsa.is/140/register en velja þarf "Darts" og bæta því við körfuna og klára greiðslu. Einungis verður hægt að kaupa miða á úrslitakvöldið í gegnum síðu Corsa.
Skráning í RIG 2024 er hér fyrir neðan:
Listi yfir skráða keppendur:

