Úrvalsdeildin í pílu verður aftur á dagskrá í vetur og nú fer spennan að magnast. Alls munu 16 pílukastarar tryggja sér sæti í deildinni og nú liggur fyrir hvernig þátttökuréttur verður ákveðinn og hvernig síðustu sætin ráðast.

Úrvalsdeildin verður haldin í samstarfi við SÝN og verður keppnisfyrirkomulagið að mestu með svipuðu sniði og á síðasta ári. Allir 16 keppendur fá að lágmarki tvö keppniskvöld og á hverju kvöldi mætast átta leikmenn í útsláttarfyrirkomulagi þar sem þeir safna stigum eftir árangri sínum.

Þrettán sæti ráðast fyrst
Alls verða 13 sæti tryggð áður en undankeppnirnar fara fram.
Þátttökurétt tryggja meðal annars:

  • Úrvalsdeildarmeistari 2025
  • Íslandsmeistari karla 2026
  • Íslandsmeistari kvenna 2026
  • Efstu leikmenn á opnum stigalista ÍPS

Staðan á stigalista ÍPS þann 1. september verður því gríðarlega mikilvæg. Þeir leikmenn sem þá hafa tryggt sér sæti þurfa því ekki að taka þátt í undankeppnunum.
Ef einhver þeirra leikmanna sem á sjálfkrafa þátttökurétt er þegar meðal efstu leikmanna stigalistans færist sætið áfram niður listann til næsta leikmanns sem ekki hefur þegar tryggt sér þátttökurétt.

Þrjú síðustu sætin ráðast í undankeppnum

Fyrir þau sem enn eru ekki með fast sæti er samt ennþá möguleiki á sæti.
Tvær undankeppnir verða haldnar í september og þar verða þrjú síðustu sætin í Úrvalsdeildinni 2026 í boði.

Reykjavík – 2. september hjá PFR
Tveir efstu leikmenn tryggja sér sæti í Úrvalsdeildinni.

Norðurland – 8. september hjá Píludeild Þórs
Sigurvegari mótsins tryggir sér sæti í Úrvalsdeildinni.

Undankeppnirnar eru opin mót fyrir félagsmenn ÍPS sem hafa ekki þegar tryggt sér þátttökurétt í deildinni.

Það verður því enginn skortur á spennu og keppni. Í undankeppnunum getur eitt gott kvöld breytt öllu og fært leikmanni sæti á stærsta sviði íslenska pílukastsins.


Sextán leikmenn – eitt markmið

Þegar undankeppnunum lýkur verður endanlegur 16 manna hópur Úrvalsdeildarinnar 2026 ljós.
Þá tekur við baráttan sjálf.

Á hverju keppniskvöldi munu átta leikmenn berjast um stig í útsláttarfyrirkomulagi og hver einasti leikur getur skipt máli þegar kemur að stöðunni í deildinni og möguleikanum á að komast alla leið á úrslitakvöldið.

Úrvalsdeildin hefur á undanförnum árum fest sig í sessi sem einn af hápunktum íslenska pílutímabilsins og allt stefnir í að árið 2026 verði engin undantekning.
Hverjir tryggja sér sæti? Hverjir þurfa að fara lengri leiðina í gegnum undankeppnirnar? Og hver stendur uppi sem Úrvalsdeildarmeistari 2026?
Við fáum fyrstu svörin strax í september. Við skulum spila pílu!

Skráning og greiðsla

Þátttökugjald er 3.000kr.

Sigurvegari mótsins tryggir sér sæti í Úrvalsdeild SÝN sport og ÍPS 2026

Skráning hefst miðvikudaginn 26. ágúst  og skráningarfrestur er til kl. 18:00
þriðjudaginn 1. sept 2026