Fimmta umferð Floridana mótaraðarinnar fór fram um helgina, bæði í Reykjavík og á Akureyri. Keppt var í fjölmörgum deildum og var hart barist um mikilvæg stig.

Í Reykjavík stóð Alexander Veigar uppi sem sigurvegari í Kristalsdeildinni, sterkustu deild mótaraðarinnar. Þá voru sigurvegarar krýndir í öllum deildum niður styrkleikaröðina.

Úrslit frá 5. umferð í Floridana á Akureyri.

Á Akureyri sigraði Ágúst Halldór Viðarsson Gulldeild NA og Jóhanna Eggertsdóttir sigraði Gulldeild kvenna. Þá voru einnig krýndir sigurvegarar í Silfur-, Brons- og Kopardeild NA.

Úrslit 5. umferðar höfðu jafnframt áhrif á stöðu keppenda á stigalista Floridana, þar sem nokkrar breytingar urðu á röðuninni. Baráttan um efstu sæti mótaraðarinnar er því áfram galopin þegar farið er inn í lokasprett tímabilsins.
Úrslit 5. umferðar höfðu jafnframt áhrif á stöðu keppenda á stigalista ÍPS, þar sem nokkrar breytingar urðu á röðuninni. Baráttan um efstu sæti stigalistanns er því áfram galopin. Hér má sjá uppfærðan stigalista karla og hér má sjá uppfærðan stigalista kvenna.
Einnig hafa meðaltölin fyrir Floridana deildina verið uppfærð – Meðaltöl 2026

ÍPS óskar öllum verðlaunahöfum og keppendum til hamingju með árangurinn og þökkum fyrir frábæra 5. umferð. Við erum þegar farin að hlakka til 6. umferðar sem fer fram þann 13. september n.k.