Hér má sjá áætlaða deildaskiptingu fyrir 5. umferð Floridana deildarinnar árið 2024.

Fyrirkomulag uppröðunnar er þannig að fyrst er leikmanni raðað útfrá því hvort hann komst upp um deild eða féll niður um deild í síðustu umferð (fyrstu 2 og síðustu 2 sæti). Þvínæst er nýjasta meðaltal leikmanns notað, þannig getur leikmaður farið upp eða niður um fleiri en eina deild.

Grænu hringirnir tákna að leikmaður komst upp um amk eina deild og rauðu þríhyrningarnir tákna að leikmaður datt niður um amk eina deild. ÍPS áskilur sér rétt á að gera breytingar á deildum ef þurfa þykir, t.d. vegna forfalla.

Norðausturdeild spilar í aðstöðu Píludeildar Þórs á Akureyri

RVK deildir spila á Bullseye Reykjavík

Húsin opna kl. 09:00 og byrjað verður að spila í öllum deildum kl. 10:30. Nauðsynlegt er að staðfesta mætingu á staðnum hjá mótstjóra fyrir kl. 09:45

Ef þú ert að skoða í síma þá gætir þú þurft að skruna til hliðar til að sjá NA deildir.