Dartung – 2.umferð

1.500 kr.

"*" indicates required fields

Email*
ATH! með skráningu í mótið samþykkir þú að nafnið þitt, fæðingarár og skráður flokkur sé birt undir "Skráðir keppendur"
This field is hidden when viewing the form
Staða
SKU: Dartung4-1-1 Category:

Description

Önnur umferð DARTUNG 2025 verður haldið í aðstöðu Pílufélags Reykjavíkur, Tangarhöfða 2, Reykjavík,  sunnudaginn 4. maí. Húsið opnar kl. 10:00 og byrjað verður að spila kl. 11:00.

Allir pílukastarar á aldrinum 9-18 ára (fæddir 2007-2016) geta tekið þátt í þessari mótaröð en spiluð verða 4 mót á árinu 2025. Stig verða gefin fyrir árangur og 12 mánaða rúllandi stigalisti mun halda utan um árangur allra keppenda.

Stigameistarar í öllum flokkum fá einnig verðlaun eftir mótið.

Mótaröðin verður aldurs- og kynjaskipt ef næg þátttaka fæst og spilaðir verða riðlar + útsláttur.

DARTUNG verður skipt í aldurshópana 9-13 ára og 14-18 ára. Miðað er við árið og eru því allir krakkar sem eru orðnir 9 ára á árinu velkomnir og unglingar sem verða 18 ára á þessu ári fá einnig þátttökurétt á mótaröðinni.

Þátttökugjald verður 1500 kr. pr. keppanda.

Stig verða gefin fyrir árangur í mótunum og verða þau sem hér segir:

1 sæti: 30 stig
2 sæti: 20 stig
3.-4. sæti: 15 stig
5.-8. sæti: 10 stig
9.-16. sæti: 5 stig