Loading Viðburðir

« Viðburðir

  • Þessum viðburði er lokið

Floridana deildin – 3. umferð

10. mars 2024 kl. 10:30 - 17:00

Um Floridana deildina

Floridana deildin er hönnuð fyrir pílukastara á öllum sviðum íþróttarinnar. Deildirnar eru settar þannig upp að þú færð marga keppnisleiki og flesta við leikmenn með svipað getustig. Það skiptir ekki máli hvort þú stefnir á að keppa fyrir landslið Íslands eða ert að taka þín fyrstu skref í pílukasti, þú færð alltaf að keppa við jafninga í íþróttinni og því undir þér komið hvað þú vilt ná langt. Aðeins pílukastarar sem hafa gilda skráningu í einu af aðildarfélögum sambandsins geta tekið þátt í Floridana deildinni.

Skráningu lýkur kl 18:00 miðvikudaginn 6. mars.

 

Staðsetning, fyrirkomulag og reglur

3. umferð verður haldin sunnudaginn 10. mars nk. á Bullseye, Snorrabraut 34.  Keppni í Norðausturdeild Floridana deildarinnar fer fram í aðstöðu Píludeildar Þórs að Laugargötu 4, Akureyri. Leikir í öllum deildum hefjast kl. 10:30 en húsin opna kl. 09:00. Staðfesta þarf skráningu á staðnum amk. 45 mín fyrir upphaf allra deilda.  Ef skráning verður mikil gæti þurft að spila einhverjar deildir í aðstöðum pílufélaga sambandsins.

Fjöldi deilda fer eftir skráningu hverju sinni.  Hámarksfjöldi í hverri deild eru 9 manns að Kristalsdeild undanskilinni en þar eru 12 manns. Ef skráningar ná ekki uppí 9 keppendur í allar deildir fyrir ákveðna umferð þá gæti þurft að breyta fjölda í hverri deild í þeirri umferð en ávallt verður reynt að hafa 7-9 manns í hverri deild í hverri umferð.

Spilað er 501, best af 7 leggjum í þremur efstu deildum en best af 5 leggjum í öðrum deildum.  Í Norðausturdeild er spilað best af 7 leggjum í efstu deild en best af 5 í öðrum deildum. Allir spila við alla einu sinni og er gefið 1 stig fyrir sigur í hverjum leik. Sigurvegarar hverrar deildar verða krýndir að hverri umferð lokinni og fá þau að launum glæsilegan verðlaunapening. Þeir keppendur sem lenda í tveimur efstu sætum hverrar deildar tryggja sig upp um amk. eina deild og þeir keppendur sem lenda í tveimur neðstu sætum hverrar deildar í úrslitaumferðinni falla niður um amk. 1 deild.

Nýtt fyrirkomulag efstu deilda – Kristals- og Gulldeildir

Stjórn ÍPS hefur ákveðið að gera fyrirkomulagsbreytingar á efstu deildum Floridana deildarinnar sem tók gildi í fyrstu umferð. Einnig verða teknir í notkun nýjir stigalistar ÍPS.  Reglurverk Floridana og nánari upplýsingar um þessar breytingar hér.

Þátttökugjald er 3.500kr og er hægt að greiða með greiðslukorti eða ApplePay

ATH! Til að auðvelda utanumhald þá biðjum við keppendur að skrá sig með nákvæmlega sama nafni og kemur fram á Meðaltalslista 2024, sjá HÉR

Skráðir keppendur:

Kristalsdeild

Reykjavík

Norðausturland

#Nafn Aðildarfélag AVG
1Dilyan Nikolaev KolevPíludeild Þórs (PÞ)65,03
2Einar GíslasonPílukastfélag Skagafjarðar (PKS)60,16
3Ágúst Örn VilbergssonPíludeild Þórs (PÞ)59,24
4Axel James WrightPílukastfélag Reykjavíkur (PFR)59,23
5Friðrik GunnarssonPíludeild Þórs (PÞ)58,73
6Michael ReinholdPíludeild Þórs (PÞ)56,46
7Jón Örn PálssonPíludeild Þórs (PÞ)55,26
8Brynja HerborgPílukastfélag Reykjavíkur (PFR)54,95
9Orri HjaltalínPílufélag Grindavíkur (PG)53,08
10Jón ÓlafssonPíludeild Þórs (PÞ)52,62
11Gunnþór Eyfjörð GunnþórssonPílufélag Dalvíkur (PD)51,56
12Kristján ÖrnólfssonPíludeild Þórs (PÞ)50,93
13Jón SæmundssonPílufélag Dalvíkur (PD)50,86
14Einar Helgi GunnarssonPíludeild Þórs (PÞ)50,08
15Birgir IngasonUngmennafélagið Æskan Svalbarðsströnd (PÆ)49,61
16Árni Gísli MagnússonPíludeild Þórs (PÞ)48,37
17Sigurður SölvasonPílufélag Dalvíkur (PD)47,93
18Ægir Eyfjörð GunnþórssonPílufélag Dalvíkur (PD)46,05
19Runólfur B. GautasonPíludeild Þórs (PÞ)45,84
20Pétur Helgi FriðrikssonUngmennafélagið Æskan Svalbarðsströnd (PÆ)45,56
21Thanh Viet NguyenPíludeild Þórs (PÞ)45,12
22Friðjón Árni SigurvinssonPílufélag Dalvíkur (PD)45,09
23Ólafur Dan H. KjerúlfPílufélag Vopnafjarðar (PV)42,96
24Viðar HelgasonPíludeild Þórs (PÞ)42,85
25Ágúst svan AðalsteinssonPíludeild Þórs (PÞ)40,76
26Halldòr GuđmundssonPílufélag Fjallabyggðar (PF)39,13
27Arnþór Gylfi FinnssonPíludeild Þórs (PÞ)36,11
28Jafet Arnar PálssonPílukastfélag Reykjavíkur (PFR)35,49
29Markús JónassonPíludeild Þórs (PÞ)34,42
30Jón Margeir SverrissonPíludeild Þórs (PÞ)30,55
31Kristján HaukssonPílufélag Fjallabyggðar (PF)
32Eggert SigmundssonPíludeild Þórs (PÞ)
33Pétur HelgasonPíludeild Þórs (PÞ)
34Jónas Halldór FriðrikssonPíludeild Völsungs
35Hákon Freyr JónssonPíludeild Þórs (PÞ)
36Brynjúlfur SigurðssonPíludeild Völsungs
37Arnór OrriPíludeild Þórs (PÞ)
38Sigurður Helgi BrynjúlfssonPíludeild Völsungs
39Sævar GuðmundssonPíludeild Völsungs
40Þröstur þór SigurðssonPíludeild Völsungs
41Friðrik Örn ÁsgeirssonPílufélag Fjallabyggðar (PF)
#Nafn Aðildarfélag AVG

Nánar

Dags:
10. mars 2024
Tími:
10:30 - 17:00
Viðburður flokkur:

Skipuleggjandi

ÍPS
Email
dart@dart.is
Heimasíða

Staðsetning

Bullseye
Snorrabraut 37
Reykjavík, Austurbær 105 Iceland
+ Google Map
Phone
4546000
Heimasíða