Stigamót 1&2 verða haldin í aðstöðu Pílufélags Reykjanesbæjar, Keilisbraut 755, Ásbrú laugardaginn 10. ágúst

Stigamót 3&4 verða haldin í aðstöðu Pílukastfélags Reykjavíkur að Tangarhöfða 2 sunnudaginn 11. ágúst.

———

Stigamót ÍPS hafa undanfarin ár verið haldin bæði á Suðurlandi og Norðurlandi fyrsta fimmtudag í hverjum mánuði. Stigin sem spilarar vinna sér inn á þessum mótum hafa verið notuð til að mynda stigalista ÍPS. Með breyttu fyrirkomulagi á stigalista ÍPS munu stigamótin einnig breytast en hér fyrir neðan koma helstu breytingar.

  • Stigamót ÍPS verða nú ekki lengur haldin fyrsta fimmutdag hvers mánaðar. Nákvæma dags- og staðsetningu fyrir 2019 má sjá á dagatali sambandsins hér: www.dart.is/calendar
  • Spiluð verða 2 Stigamót sama dag.
  • Fyrirkomulag Stigamóta breytist einnig en spilaður er beinn útsláttur, best af 9 leggjum alla leið, bæði hjá körlum og konum
  • Raðað er í mótið skv stigalista ÍPS. Undantekning er Stigamót 1 en dregið verður blint í það mót.
  • Fyrra mótið hefst kl. 11 og seinna mótið um kl. 15 báða dagana.
  • Áfram verður kynjaskipt í Stigamótum.
  • Hægt er að skrá sig hér fyrir neðan eða á staðnum og lýkur skráningu kl 10 báða dagana.
  • Þátttökugjald í hvert stigamót verður 1.500kr.
  • Regluverk Stigamóta má nálgast undir Reglur-Stigamót 2019