
Íslandsmótið í Cricket 2025

Íslandsmótið í Cricket verður helgina 9-10. ágúst 2025 en keppnisstaður er en óákveðinn. Þátttökurétt hafa allir skráðir félagsmenn aðildarfélaga ÍPS. Keppt verður í karla- og kvennaflokkum í einmenning og tvímenning og dregið verður af handahófi í alla riðla.
Laugardagurinn 9. ágúst
Riðlakeppni og útsláttur í tvímenning karla og kvenna. Húsið opnar kl. 09:00. Fyrstu riðlar byrja að spila kl. 10:30.
Staðfesta þarf mætingu hjá mótstjórn að lágmarki 45 mín fyrir upphaf mótsins. Fyrstu leikir í riðlum byrja kl. 10:30.
Best af 5 í riðlakeppni. Best af 7 í útslætti fram að undanúrslitum en þar er spilað best af 9. Úrslitaleikir eru best af 11.
Sunnudagur 10. ágúst
Riðlakeppni og útsláttur í einmenning karla og kvenna. Húsið opnar kl. 09:00.
Staðfesta þarf skráningu hjá mótstjórn að lágmarki 45 mín fyrir upphaf riðlakeppni.
Best af 5 í riðlakeppni. Best af 7 í útslætti fram að undanúrslitum en þar er spilað best af 9. Úrslitaleikir eru best af 11.