![](https://i0.wp.com/dart.is/wp-content/uploads/2022/04/699A578D-7361-46C4-92EC-67780EF0B8B2.jpeg?fit=1475%2C934&ssl=1)
Stjórn ÍPS boðar hér með til aðalfundar þann 5. maí næstkomandi að Tangarhöfða 2, og á Skype klukkan 19:00.
Dagskrá:
- Kosning fundarstjóra og fundarritara
- Skýrsla stjórnar
- Gjaldkeri leggur fram skoðaða reikninga
- Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga
- Reikningar bornir undir atkvæði
- Ákvörðun árgjalds
- Lagðar fram tillögur að lagabreytingum
- Lagabreytingar bornar undir atkvæði
- Kosning stjórnar, varastjórnar og endurskoðanda skv. 9 grein sambandsins.
- Aðrar tillögur – Þær bornar undir atkvæði
Allar tillögur til lagabreytinga skulu berast ÍPS á dart@dart.is að lágmarki 5 dögum fyrir aðalfund ef þær eiga að vera teknar til umræðu á fundinum og verða þær aðgengilegar á heimasíðu sambandsins.
Kosningar á aðalfundi skulu vera leynilegar sé þess óskað, annars úrskurðuð með handauppréttingu. Einfaldur meirihluti ræður úrslitum allra mála. Hægt verður að kjósa á Skype en einunings ef einn eða fleiri stjórnarmeðlimir viðkomandi aðildarfélags séu á staðnum til að sjá um kosninguna og staðfesta úrslit hennar.
Skv. lögum ÍPS verður kosið um forseta og ritara ÍPS, ásamt varamanni á aðalfundi 2022 og er kosið til næstu tveggja ára.