Tilkynning – Seinkun á viðburði

Vegna mjög slæmrar veðurspár hefur stjórn ÍPS ákveðið að fresta Íslandsmeistaramótinu í pílukasti 2026, sem átti að fara fram dagana 21.–22. mars.

Öryggi keppenda, starfsmanna og gesta er í forgangi og því var þessi ákvörðun tekin með hagsmuni allra að leiðarljósi.

Ný dagsetning verður auglýst síðar.

Við vildum taka þessa ákvörðun frekar fyrr en seinna.
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda og þökkum fyrir skilninginn.
Við hlökkum til að sjá ykkur þegar mótið fer fram við betri aðstæður!

Þeir sem eru þegar skráðir og greiddir eru sjálfkrafa greiddir í mótið þegar það verður haldið.

Stjórn Íslenska Pílukastsambandsins