Vegna mikillar þáttöku Dartung þarf að skipta niður deildum á tíma yfir daginn.
Hér að neðan má sjá uppsetta dagskrá en við biðjum yngri deildirnar að mæta kl. 09:15 og eldri deildir að mæta kl. 13:15, eða 45 mínútum fyrir setta leiki.

Húsið opnar kl 09:00

9-13 ára – drengir og stúlkur byrja að spila kl 10:00
14-18 ára – drengir og stúlkur byrja að spila kl. 14:00
Mæting er 45 mínútum fyrir leiki.

Keppendur skulu vera í snyrtilegum klæðnaði og í góðum skóm. Inniskór og crocs eru t.d. óæskilegur skófatnaður.
Forráðamenn verða að fylgja börnum sínum á mótið. (Vegna plássleysis biðjum við að það séu mest tveir sem fylgja hverju barni)
Heyrnatól eru ekki leyfð nema í læknisfræðilegum tilgangi.
Höfuðföt eru aðeins leyfð í trúarlegum eða læknisfræðilegum tilgangi.