Framhalds-aðalfundur ÍPS fór fram þann 26. janúar sl. í kjölfarið af Aðalfundi sem hafði óskað eftir framhaldsfundinum þar sem ekki tókst að kjósa í öll sjö stjórnarsæti ÍPS á Aðalfundi 2023. Engin ný framboð bárust á Framhalds-aðalfundinum.
Fundargerð Framhalds-aðalfundar ÍPS 26. janúar 2023
Þar sem margir viðburðir eru framundan mun núverandi stjórn því sitja áfram þar til annar aukafundur verður boðaður. Ekki er komin dagsetning á þann fund. Þangað til hvetjum við félagsmenn sem hafa áhuga á að sinna stjórnarstörfum til að senda póst til stjórnar ÍPS á dart@dart.is.
Núverandi stjórn skipa eftirfarandi félagsmenn ÍPS:
| Félagsmaður | Hlutverk |
|---|---|
| Matthías Örn Friðriksson | Formaður |
| Ásgrímur Harðarson | Varaformaður |
| Magnús Gunnlaugsson | Ritari |
| Sigurður Aðalsteinsson | Gjaldkeri |
| Brynja Herborg | Meðstjórnandi |
| Helgi Pjetur | Meðstjórnandi |
| Viðar Valdimarsson | Meðstjórnandi |
