• Íslandsmót Félagsliða fer fram núna um helgina 30-31 ágúst á Bullseye.
  • 12 félög eru skráð til leiks og eru 22 karlalið og 4 kvennalið.
    Það þýða 44 pör í tvímenning karla og 8 pör í tvímenning kvenna.
    Þetta er því fjölmennasta Félagsliðamót ÍPS til þessa.
  • Dregið var miðvikudaginn 27. ágúst svo mótstjórn hafi fimmtudag og fyrri hluta föstudags til að leiðrétta villur eða breytingar sem koma upp. 

Úrdrátturinn fyrir laugardag verður auglýstur á föstudaginn 29. Ágúst  kl 14:00.

Við minnum keppendur á Keppnis- og Mótareglur ÍPS og þá sérstaklega varðandi klæðnað og háttvísi.

Á staðnum verður hægt að kaupa sér eitthvað af matseðli en sá seðill hefur verið betrumbættur. Reynum að virða það að veitingar og drykkir er seldar á staðnum og hjálpumst að.

  • Ef einhverjar upplýsingar vantar á mótstað er alltaf betra til að það verði ekki misskilningur, að liðstjórar komi til mótstjóra og ræði málin.
  • Ath – Hægt er að fylgjast með öllum leikjum á Dartconnect og í streymi Live Darts Iceland.

Dartconnect – Einmenningur og Tvímenningur 

Dartconnect -Liðakeppnin

Live streymi frá Live Darts Iceland 

Dagskrá – Laugardagur

Hús opnar: kl. 08:30

Útsláttur í tvímenning karla hefst kl. 10:00 og stefnt er á að það klárist kl 14:00.

Einmenningur byrjar kl.14:30 en ef klukkan er okkur í hag munum við byrja fyrr. 

Þar sem allir spilarar fá pásur inn á milli í útslætti þá ættu allir að hafa nægan tíma fyrir mat og rólegheit, við minnum þó á að passa sig að mæta ekki seint á línu,  það gæti haft afleiðingar. 

Útsláttur í tvímenning kvenna byrjar kl 10:00 til úrslitaleiks. Að tvímenning loknum verður tekin stutt pása áður en byrjað verður á í einmenning kvenna.

Spiluð verða úrslit karla og kvenna í tvímenning á laugardeginum. 

Aftur ef klukkan er okkur í hag ætti að vera hægt að klára einmenning á laugardeginum, ef ekki þá munum við spila hann á sunnudagsmorgninum áður en liðakeppnin byrjar. 

Virðum leikinn og höfum gaman !!