Íslandsmót 501 – Tvímenningur

4.000 kr.

Category:

Description

Íslandsmótið í 501 tvímenning 2024 verður haldið á Bullseye sunnudaginn 3. nóvember 2024. Þátttökurétt hafa allir skráðir félagsmenn aðildarfélaga ÍPS. Keppt verður í karla- og kvennaflokkum í riðlum og útslætti.

Spilað verður best af 5 í riðlakeppni, best af 7 í útslætti, best af 9 í undanúrslitum og best af 11 í úrslitaleik.

Húsið opnar kl. 09:00 en keppni hefst stundvíslega kl. 10:30.  Keppendur þurfa að vera mættir og búnir að skrá sig inn amk 45 mínútum áður en keppni hefst.

Skráning er hafin og skráningarfrestur er til kl. 12:00, laugardaginn 2. nóvember 2024.