
Úrvalsdeildin verður aftur á dagskrá næsta vetur, en í þetta sinn keppa 16 pílukastarar með svipuðu fyrikomulagi og í fyrra. Allir 16 keppendurnir í Úrvalsdeildinni keppa a.m.k. 2 kvöld í beinni útsendingu en öll kvöldin að úrslitakvöldinu undanskyldu verða leikinn í 8 manna útsláttarfyrirkomulagi eins og í fyrra og vinna leikmenn sér inn stig eftir hvert kvöld.
ATH! ÍPS áskilur sér rétt á að uppfæra fyrirkomulagið eftir þörfum.
Hér að neðan má sjá hvernig hægt er að tryggja sér þátttökurétt í Úrvalsdeildinni. Listinn verður uppfærður um leið og leikmenn tryggja sér þátttökurétt en 12 leikmenn hafa nú þegar tryggt sér rétt til þátttöku í haust. Nánari reglur um þátttökurétt er að finna undir töflunni.
Reglur um þátttökurétt:
- Íslandsmeistarar karla 2025, Úrvalsdeildarmeistari 2024, Íslandsmeistari kvenna og Íslandsmeistari U18 fá sjálfkrafa sæti ef þau verða ekki nú þegar í efstu 10 sætum á stigalista ÍPS þann 6. júní.
- Ef ofangreindir leikmenn eru ekki í efstu 10 sætum á stigalista ÍPS fá þau sæti í 4. styrkleikaflokk. Þessir leikmenn mega þá taka þátt í fyrstu tveimur undankeppnunum til þess að freista þess að tryggja sætið sitt í 3. styrkleikaflokki. Ef það tekst fær næsti leikmaður á stigalista ÍPS sæti þeirra í 4. styrkleikaflokk.
- Þeir leikmenn sem hafa þegar tryggt sæti sitt í 1., 2. og 3 styrkleikaflokki með þvi að vera í efstu 10 sætum stigalista ÍPS þann 6. júní mega ekki keppa í undankeppnum.
- Ef leikmenn sem eru í 10 efstu sætunum eða leikmenn sem vinna undankeppnir þurfa að draga sig úr keppni af einhverjum ástæðum fær efsti leikmaður á stigalista ÍPS sem ekki hefur þegar tryggt sér sæti þátttökurétt. Ef einn eða fleiri eru jafnir á ÍPS listanum skal notast við nýjustu stig viðkomandi leikmanna til að skera úr um hver fær sætið.
- Ef Íslandsmeistari karla, kvenna eða Íslandsmeistari U18 draga sig úr keppni af einhverjum ástæðum fá leikmenn sem enduðu í 2. sæti á Íslandsmóti þátttökurétt. Ef leikmenn í 2. sæti gefa ekki kost á sér að taka sætið fær efsti leikmaður á ÍPS listanum sem ekki hefur þegar tryggt sér sæti þátttökurétt.
Undankeppnir:
Undankeppnir fara fram í júní og júlí. Allar undankeppnir eru opin mót sem allir félagsmenn í ÍPS geta tekið þátt í. Haldnar verða 4 undankeppnir og verða settar inn tilkynningar um leið og þátttökustaðir og keppnisdagar verða ákveðnir. Ef undankeppni fellur niður eða ekki næst að halda undankeppni af einhverjum ástæðum, færist þátttökurétturinn á efsta leikmann á ÍPS listanum sem ekki hefur þegar tryggt sér þátttökurétt.
Athugasemdir eða spurningar má senda á stjórn á dart@dart.is