Loading Viðburðir

« Viðburðir

Dartung 1. umferð

31. janúar kl. 10:30 - 14:00

Fyrsta umferð DARTUNG 2026 verður haldið í aðstöðu Pílufélags Reykjanesbæjar upp á Ásbrú í Reykjanesbæ laugardaginn 31. janúar. Húsið opnar kl. 09:30 og byrjað verður að spila kl. 10:30.

Allir pílukastarar á aldrinum 9-18 ára (fæddir 2008-2017) geta tekið þátt í þessari mótaröð en spiluð verða 5 mót á árinu 2026. Stig verða gefin fyrir árangur og 12 mánaða rúllandi stigalisti mun halda utan um árangur allra keppenda.

Stigameistarar í öllum flokkum fá einnig verðlaun eftir mótið.

Mótaröðin verður aldurs- og kynjaskipt ef næg þátttaka fæst og spilaðir verða riðlar + útsláttur.

DARTUNG verður skipt í aldurshópana 9-13 ára og 14-18 ára. Miðað er við árið og eru því allir krakkar sem eru orðnir 9 ára á árinu velkomnir og unglingar sem verða 18 ára á þessu ári fá einnig þátttökurétt á mótaröðinni.

Þátttökugjald verður 1500 kr. pr. keppanda.

Stig verða gefin fyrir árangur í mótunum og verða þau sem hér segir:

1 sæti: 30 stig
2 sæti: 20 stig
3.-4. sæti: 15 stig
5.-8. sæti: 10 stig
9.-16. sæti: 5 stig

ATH, síðan með skráðum keppendum tekur smá tíma að hlaðast inn.

Skráningarfrestur fyrir DartUng 1 er til kl. 18:00 fimmtudaginn 29. janúar

Nánar

  • Dags: 31. janúar
  • Tími:
    10:30 - 14:00
  • Viðburður flokkur: