- Þessum viðburði er lokið
UK2 Grindavík
20. apríl 2023
Um Úrvalsdeildina
Úrvalsdeild Stöð 2 Sport 2023 hefst í lok ágúst en deildin verður tvöfalt stærri í ár þar sem 32 leikmenn keppa í 8 fjögurra manna riðlum á Bullseye. Núþegar hafa 15 pílukastarar tryggt sér þátttökurétt í Úrvalsdeildinni. Næstu 15 leikmenn geta tryggt sér sæti með góðum árangri í Íslandsmóti eða í einni af undankeppnunum sem ÍPS heldur í samstarfi við aðildarfélög.
Um undankeppnirnar
Undankeppnirnar í ár verða sex talsins:
UK1 á Akureyri
UK2 Í Grindavík
UK3 á Hvammstanga
UK4 á Bullseye Reykjavík
UK5 hjá PFR, Tangarhöfða
UK6 á Akranesi
Í hverri undankeppni tryggja einn eða tveir pílukastarar sér þátttökurétt í Úrvalsdeildinni. Allir meðlimir í aðildarfélögum ÍPS geta tekið þátt í öllum undankeppnum að þeim keppendum undanskildum sem hafa núþegar tryggt sér þátttökurétt í Úrvalsdeildinni. Ekki eru sér karla- og kvennaflokkar, heldur eingöngu blandaður flokkur.
Um UK2 Grindavík
Staðsetning: Íþróttamiðstöð, Austurvegur 1-3, 240 Grindavík
Dagsetning: Fimmtudagur, 20. apríl 2023 (Sumardaginn fyrsta)
Tímasetning: Húsið opnar 11:00, keppni hefst 13:00
Fyrirkomulag: 501 einmenningur.Spilað verður í riðlum og útslætti – Fjöldi leggja og riðla fer eftir skráningu
Hámarksfjöldi keppenda: 80 keppendur að hámarki geta tekið þátt í UK2 – Fyrstu skáir sig, fyrstur fær.
Keppnisgjald: 3.500 kr. – Greitt á mótstað
Sæti í boði: 1. sæti og 2. sæti í þessu móti tryggir þátttökurétt í Úrvalsdeild Stöð 2 Sport 2023.
Styrkleikaröðun: Já, styrkleikaraðað verður í undankeppnir eftir nýjasta meðaltali í NOVIS deildinni