- Þessum viðburði er lokið
UK4 Bullseye Reykjavík
10. maí 2023
Um Úrvalsdeildina
Úrvalsdeild Stöð 2 Sport 2023 hefst í lok ágúst en deildin verður tvöfalt stærri í ár þar sem 32 leikmenn keppa í 8 fjögurra manna riðlum á Bullseye. Núþegar hafa 21 pílukastari tryggt sér þátttökurétt í Úrvalsdeildinni. Næstu 15 leikmenn geta tryggt sér sæti með góðum árangri í Íslandsmóti eða í einni af undankeppnunum sem ÍPS heldur í samstarfi við aðildarfélög.
Um undankeppnirnar
Undankeppnirnar í ár verða sex talsins:
UK1 á Akureyri
UK2 Í Grindavík
UK3 á Hvammstanga
UK4 á Bullseye Reykjavík
UK5 hjá PFR, Tangarhöfða
UK6 á Akranesi
Í hverri undankeppni tryggja einn eða tveir pílukastarar sér þátttökurétt í Úrvalsdeildinni. Allir meðlimir í aðildarfélögum ÍPS geta tekið þátt í öllum undankeppnum að þeim keppendum undanskildum sem hafa núþegar tryggt sér þátttökurétt í Úrvalsdeildinni. Ekki eru sér karla- og kvennaflokkar, heldur eingöngu blandaður flokkur.
Um UK4 Bullseye, Reykjavík
Staðsetning: Bullseye Reykjavík
Dagsetning: Miðvikudagur, 10. maí 2023
Tímasetning: Leikir hefjast kl. 19:30. Staðfesta þarf skráningu á staðnum amk. 30 mín fyrir leiki.
Fyrirkomulag: 501, einmenningur.Spilaður verður beinn útsláttur – best af 7 í útslætti, best af 9 í úrslitaleik.
Hámarksfjöldi keppenda: 64 keppendur að hámarki geta tekið þátt í UK4 – Fyrstu skáir sig, fyrstur fær.
Keppnisgjald: 2.500 kr. – Greitt með millifærslu til PKK (mótshaldara) við skráningu (ATH! Ekki á reikning ÍPS)
Skráningarfrestur: Skráningafrestur er frá 30. apríl til 9. maí kl. 18:00
Sæti í boði: 1. sæti í þessu móti tryggir þátttökurétt í Úrvalsdeild Stöð 2 Sport 2023.
Styrkleikaröðun: Já, styrkleikaraðað verður í undankeppnir eftir nýjasta meðaltali í NOVIS deildinni