Stjórn ÍPS boðar hér með til aðalfundar þann 11. mars næstkomandi að Tangarhöfða 2, og á Skype klukkan 18:30.
Dagskrá:
- Kosning fundarstjóra og fundarritara
- Skýrsla stjórnar
- Gjaldkeri leggur fram skoðaða reikninga
- Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga
- Reikningar bornir undir atkvæði
- Ákvörðun árgjalds
- Lagðar fram tillögur að lagabreytingum
- Lagabreytingar bornar undir atkvæði, sjá neðst í fréttinni.
- Kosning stjórnar, varastjórnar og endurskoðanda skv. 9 grein sambandsins.
- Aðrar tillögur – Þær bornar undir atkvæði
- Sameining karla og kvennapílu á mótum ÍPS
- 9 pílu sjóður – Breyta reglunum að það skipti ekki máli á hvaða móti 9 pílu leikur er gerður.
- Uppfæra Íslandsmeistarabikara / Búa til nýjan farandsbikar
Allar tillögur skulu berast ÍPS á dart@dart.is 5 dögum fyrir aðalfund ef þær eiga að vera teknar til umræðu á fundinum.
Kosningar á aðalfundi skulu vera leynilegar sé þess óskað, annars úrskurðuð með handauppréttingu. Einfaldur meirihluti ræður úrslitum allra mála.