![Loading Viðburðir](https://dart.is/wp-content/plugins/the-events-calendar/src/resources/images/tribe-loading.gif)
- Þessum viðburði er lokið
DARTUNG 1
25. febrúar 2023 kl. 10:00 - 16:00
Frítt![](https://i0.wp.com/dart.is/wp-content/uploads/2023/01/Dartung1-1.jpg?fit=2000%2C1250&ssl=1)
Íslenska Pílukastsambandið kynnir með stolti DARTUNG, Unglingamótaröð ÍPS og PingPong.is í pílukasti 2023.
DARTUNG 1 verður haldið hjá PFH í Píluklúbbnum Hafnarfirði þann 25. febrúar 2023. Húsið opnar 10:00 og keppni hefst kl. 11:00
Allir pílukastarar á aldrinum 9-18 ára geta tekið þátt í þessari mótaröð en spiluð verða 4 mót á árinu 2023. Stig verða gefin fyrir árangur og 12 mánaða rúllandi stigalisti mun halda utan um árangur allra keppenda. Dagsetningar allra umferða má finna á viðburðasíðu dart.is
Mótaröðin verður aldurs- og kynjaskipt ef næg þátttaka fæst og spilaðir verða riðlar + útsláttur.
DARTUNG 1 verður skipt í aldurshópana 9-12 ára og 13-18 ára. Miðast er við árið og eru því allir krakkar sem eru orðnir 9 ára á árinu velkomnir og unglingar sem verða 18 ára á þessu ári fá einnig þátttökurétt á mótaröðinni. Mótaröðin verður sýnd í beinni útsendingu á heimasíðu ÍPS www.dart.is
Stig verða gefin fyrir árangur í mótunum og verða þau sem hér segir:
1 sæti: 30 stig
2 sæti: 20 stig
3.-4. sæti: 15 stig
5.-8. sæti: 10 stig
9.-16. sæti: 5 stig
Skráning er hér fyrir neðan og lýkur skráningu föstudaginn 24. febrúar kl. 18:00. Ekkert kostar að taka þátt í DARTUNG mótaröðinni árið 2023 og ekki er gerð krafa að keppendur séu skráðir í aðildarfélag.
Hægt er að sjá skráða keppendur með því að smella HÉR