
NOVIS deildin – 2. umferð
26. febrúar kl. 10:00 - 17:00

Það hefur sjaldan verið eins mikilvægt að taka þátt í NOVIS og núna. Í 2. umferð er mikilvægt að koma sér í góða stöðu í deildinni, því eftir 3. umferðina tryggja efstu leikmenn deildarinnar sér sæti í Úrvalsdeildinni 2023 sem fer fram í haust. Sjá nánar hér
NOVIS deildin er í samvinnu við Tryggingar og Ráðgjöf ehf. Deildin er fyrir alla pílukastara sem hafa gilda skráningu í einu af aðildarfélögum sambandsins. Ef þú ert ekki ennþá skráð/ur í aðildarfélag þá getur þú gert það með því að fylla út skráningarformið hér.
NOVIS deildin er hönnuð fyrir pílukastara á öllum sviðum íþróttarinnar. Deildirnar eru settar þannig upp að þú færð marga keppnisleiki og flesta við leikmenn með svipað getustig. Það skiptir ekki máli hvort þú stefnir á að keppa fyrir landslið Íslands eða ert að taka þín fyrstu skref í pílukasti, þú færð alltaf að keppa við jafninga í íþróttinni og því undir þér komið hvað þú vilt ná langt. ATH þeir sem eru að skrá sig í fyrsta skipti eða eru að skrá sig aftur eftir að hafa tekið amk 2 umferðir í hlé gætu lent á móti leikmönnum sem eru ekki með svipað getustig.
Önnur umferð verður haldin sunnudaginn 26. febrúar á Bullseye, Snorrabraut 34. Leikir í öllum deildum hefjast kl. 10:30 en húsið opnar kl. 09:00. Staðfesta þarf skráningu á staðnum amk. 45 mín fyrir upphaf allra deilda. Keppni í Norðuausturdeild NOVIS fer fram í aðstöðu Píludeildar Þórs að Laugargötu 4 Akureyri.
Ef skráning verður mikil gæti þurft að spila einhverjar deildir í aðstöðum pílufélaga sambandsins.
Nánari upplýsingar og skráning væntanleg þegar nær dregur.