Loading Viðburðir

« Viðburðir

  • Þessum viðburði er lokið

Íslandsmót 301 Einm-Tvím

5. október kl. 10:30 - 6. október kl. 17:00

Íslandsmótið í 301 verður haldið í aðstöðu Píludeildar Þórs á Akureyri helgina 5-6. október 2024. Þátttökurétt hafa allir skráðir félagsmenn aðildarfélaga ÍPS. Keppt verður í karla- og kvennaflokkum í einmenning og tvímenning og dregið verður af handahófi í alla riðla.

Laugardagurinn 5. okt
Riðlakeppni og útsláttur í tvímenning karla og kvenna. Húsið opnar kl. 09:00. Fyrstu riðlar byrja að spila kl. 10:30. Best af 5 í riðlum.  Staðfesta þarf skráningu hjá mótstjórn að lágmarki 45 mín fyrir upphaf riðlakeppni. Best af 7 í útslætti fram að undanúrslitum en þar er spilað best af 9. Úrslitaleikir eru best af 11.

Sunnudagur 6. okt
Riðlakeppni og útsláttur í einmenning karla og kvenna. Húsið opnar kl. 09:00. Staðfesta þarf mætingu hjá mótstjórn að lágmarki 45 mín fyrir upphaf mótsins. Fyrstu leikir í riðlum byrja kl. 10:30. Best af 5 í riðlakeppni. Best af 7 í útslætti fram að undanúrslitum en þar er spilað best af 9.  Úrslitaleikir eru best af 11.

Skráningarfrestur er til kl. 18:00 fimmtudaginn 3. október.

Nánar

Start:
5. október kl. 10:30
End:
6. október kl. 17:00
Viðburður flokkur:

Skipuleggjandi

ÍPS
Email
dart@dart.is
Heimasíða

Staðsetning

Píludeild Þórs (PÞ)
Laugargata 2-4
Akureyri, 600 Iceland
+ Google Map