Loading Viðburðir

« Viðburðir

  • Þessum viðburði er lokið

Íslandsmót félagsliða

10. desember 2022 - 11. desember 2022

Stjórn ÍPS hefur ákveðið að Íslandsmót félagsliða árið 2022 verður spilað með öðru sniði en undanfarið ár. Markmiðið með breytingunni er að undirbúa íslenska pílukastara undir komandi landsliðsverkefni og byrja undirbúning mótstjórnar fyrir Norðurlandamótið 2024 en mótið verður næst haldið á Íslandi. Einnig gefur þessi breyting fleiri keppendum færi á að taka þátt í mótinu en í ár geta aðildarfélög sent inn 3 lið í mótið í stað 2 liða í fyrra.

Íslandsmót félagsliða 2022 verður spilað með svipuðum hætti og Norðurlandamót WDF er spilað.

Helstu atriðin eru eftirfarandi:

  • Hvert aðildarfélag má senda inn 2 karlalið og 1 kvennalið til keppni.
  • Hvert lið samanstendur af 4 keppendum sem eru skráðir og greiddir félagsmenn í aðildarfélagi.
  • Keppt verður í tvímenning, einmenning og liðakeppni á einni helgi (laugardagur-sunnudags)
  • Liðin safna stigum fyrir sitt aðildarfélag eftir því hve vel gengur í hverri keppni
  • Það aðildarfélag sem safnar flestum stigum verður krýnt Íslandsmeistari félagsliða 2022.

Drög að dagskrá:

Laugardagur 10. des

10:00 – 13:00 Tvímenningur karla og kvenna
13:00 – 14:00 Hádegismatur
14:00 – 15:30 Tvímenningur karla og kvenna
15:30 – 19:00 Einmenningur karla og kvenna

Sunnudagur 11. des

10:00 – 13:00 Einmenningur karla og kvenna (ef þarf, annars liðamót)
13:00 – 14:00 Hádegismatur
14:00 – 18:00 Liðamót karla og kvenna

Reglur-og-fyrirkomulag-Íslandsmóts-félagsliða-2022

Öll aðildarfélög ÍPS hafa fengið tölvupóst með upplýsingum og skráningarformi en lokafrestur til að skila skráningum er til miðnættis þann 30. nóvember 2022.

Nánar

Start:
10. desember 2022
End:
11. desember 2022
Viðburður flokkar:
, , , ,

Staðsetning

Bullseye
Snorrabraut 37
Reykjavík, Austurbær 105 Iceland
+ Google Map
Phone
4546000
Heimasíða