ÍPS hefur selt nafnaréttinn á Íslandsmótinu í 301 og verður því spilað um FitnessSport íslandsmeistaratitla í einmenning 301 sunnudaginn 30. okt. Þátttökurétt hafa allir greiddir meðlimir aðildarfélags sambandsins. Hægt er að gerast meðlimur í einu af okkur aðildarfélögum með því að klára skráningu á dart.is. Húsið opnar kl. 09:00 og byrja fyrstu leikir kl. 11:00. Keppt er í karla- og kvennaflokki og eru spilaðir riðlar og fylgir útsláttur í kjölfarið. Sýnt verður frá mótinu í beinni útsendingu á Facebook/Youtube síðu Live Darts Iceland og verður einnig hægt að horfa á beinar útsendingar frá mótinu á dart.is.

Dagskrá

09:00 – Húsið opnar
10:00 – Staðfesting keppenda á staðnum lýkur. Dregið í riðla af handahófi
11:00 – Fyrstu leikir í öllum riðlum hefjast

Hversu margir riðlar, spilafyrirkomulag í riðlum og hve margir komast upp úr riðli fer eftir skráningu.

Eftir að riðlakeppni lýkur hefst útsláttarkeppni og er spilað eftirfarandi:

Last 64 – Best of 5
Last 32 – Best of 7
Last 16 – Best of 7
Last 8 – Best of 9
Semi finals – Best of 11
Final – Best af 13

Skráningar- og greiðslufrestur er til laugardagsins 29. okt kl. 18:00.

Þátttökugjald er kr. 4.000kr

Eingöngu er hægt að greiða þátttökugjald með millifærslu á
kt. 470385-0819
rn. 0301-26-014567

Hægt er að sjá skráða keppendur með því að smella HÉR

Hægt er að skrá sig hér að neðan: