Íslandsmótið í Cricket tvímenning fer fram á Bullseye, Snorrabraut 34 helgina 26-27 mars. Þátttökurétt hafa allir skráðir félgasmenn aðildarfélaga ÍPS. Keppt verður í karla- og kvennaflokki og dregið af handahófi í alla riðla. Þátttökugjald er 2.000kr per keppanda. Skráningarfrestur er til kl. 18:00 föstudaginn 25. mars. Skráning er ekki tekin gild nema búið sé að greiða þátttökugjald fyrir lok skráningarfrests. ÍPS áskilur sér þann rétt að spila allt mótið á sunnudeginum 27. mars ef þáttaka verður dræm.

Laugardagur 26. mars
Riðlakeppni í tvímenning karla og kvenna. Húsið opnar kl. 09:00. Fyrstu riðlar byrja að spila kl. 10:30. Best af 5 í riðlum. Riðlum gæti verið dreift yfir daginn ef þáttaka verður mikil. Staðfesta þarf skráningu hjá mótstjórn að lágmarki 45 mín fyrir upphaf riðlakeppni.

Sunnudagur 27. mars
Útsláttarkeppni í tvímenning karla og kvenna. Húsið opnar kl. 09:00. Staðfesta þarf mætingu hjá mótstjórn að lágmarki 45 mín fyrir upphaf mótsins. Fyrstu leikir í útslætti byrja kl. 11:00. Best af 7 í útslætti fram að undanúrslitum en þar er spilað best af 9. Úrslitaleikir eru best af 11.

Skráningu lýkur kl. 18:00 föstudaginn 25. mars. Skráning hér fyrir neðan:

ATH GREIÐA ÞARF SKRÁNINGARGJALD FYRIR KL. 18:00 föstudaginn 25. mars. EINUNINGS HÆGT AÐ GREIÐA MEÐ MILLIFÆRSLU:
KT: 4703850819
RN: 0301-26-014567

Hægt er að skoða skráða keppendur með því að SMELLA HÉR