2. umferð í NOVIS deildinni var spiluð síðastliðinn sunnudag í Reykjavík og á Akureyri en um 120 manns skráðu sig til leiks.

Það voru þau Hörður Þór Guðjónsson og Svanhvít Helga Hammer frá Pílufélagi Grindavíkur sem unnu Gulldeildir karla og kvenna. Á Akureyri sigraði Sigurður Fannar Stefánsson frá Píludeild Þórs Gulldeild Norðausturdeilar.

Gunnar Sigurðsson úr Pílukastfélagi Hafnarfjarðar átti hæsta útskot dagsins en hann tók út hæsta mögulega útskotið 170! Guðmundur Friðbjörnsson úr Pílukastfélagi Reykjavíkur átti næst hæsta útskotið en hann tók út 160.

Hæsta einstaka meðaltal átti Hörður Þór Guðjónsson en hann var með 89,1 í 4-1 sigri á Matthías Erni Friðrikssyni en það var úrslitaleikur um sigur í gulldeild karla en Matthías spilaði einnig vel og var með 87,3. Frábærar pílur þar á ferð!

Búið er að uppfæra heildarstöðu NOVIS deildarinnar eftir 2. umferð en hún inniheldur einnig meðaltal keppanda í 1. umferð sem tóku ekki þátt í 2. umferð. Tveir efstu keppendur hverrar deildar í 2. umferð eru búnir að tryggja sig upp um amk. 1 deild í 3. umferð sem spiluð verður 28. ágúst.

Sigurvegarar 2. umferðar NOVIS deildarinnar voru:

GulldeildHörður Þór Guðjónsson
Gulldeild kvennaSvanhvít Helga Hammer
Gulldeild NorðausturSigurður Fannar Stefánsson
SilfurdeildBjarki Björgúlfsson
Silfurdeild NorðausturHelgi Þór Jónasson
BronsdeildScott Ramsay
KopardeildIngibjörg Magnúsdóttir
JárndeildSævar Hólm Valdimarsson
BlýdeildTryggvi Þórhallsson
ÁldeildJón Ingi Ottósson
SinkdeildSindri Rósenkranz
StáldeildFriðrik Diego

Hér fyrir neðan má síðan sjá myndir frá hluta af sigurvegurum helgarinnar og óskar ÍPS öllum til hamingju og þakkar öllum þeim sem aðstoðuðu á einn eða annan hátt kærlega fyrir hjálpina.