Það hefur sjaldan verið eins mikilvægt að taka þátt í NOVIS deildinni og núna. Í 2. umferð er mikilvægt að koma sér í góða stöðu í deildinni, því eftir 3. umferðina tryggja efstu leikmenn deildarinnar sér sæti í Úrvalsdeildinni 2023 sem fer fram í haust.  Sjá nánar hér 

NOVIS deildin er fyrir alla pílukastara sem hafa gilda skráningu í einu af aðildarfélögum sambandsins. Ef þú ert ekki núþegar skráð/ur í aðildarfélag þá getur þú gert það með því að fylla út skráningu í ÍPS hér.

NOVIS deildin er hönnuð fyrir pílukastara á öllum sviðum íþróttarinnar. Deildirnar eru settar þannig upp að þú færð marga keppnisleiki og flesta við leikmenn með svipað getustig. Það skiptir ekki máli hvort þú stefnir á að keppa fyrir landslið Íslands eða ert að taka þín fyrstu skref í pílukasti, þú færð alltaf að keppa við jafninga í íþróttinni og því undir þér komið hvað þú vilt ná langt.