Loading Viðburðir

« Viðburðir

  • Þessum viðburði er lokið

GrandPrix 2023

12. mars 2023 kl. 10:00 - 18:00

Um Grand Prix

Grand Prix 2023 verður haldið í fyrsta skipti sunnudaginn 12. mars 2023 á Bullseye, Reykjavík.  Allir pílukastarar sem hafa gilda skráningu í einu af aðildarfélögum ÍPS geta skráð sig í mótið.

Ef þú ert ekki núþegar skráð/ur í aðildarfélag þá getur þú gert það með því að fylla út skráningu í ÍPS hér. (ATH þetta er ekki skráning í Grand Prix, hún er neðst á þessari síðu.)

Staðsetning, fyrirkomulag og reglur

Spilað verður 501 einmenningur, DIDO (Double-in, Double-out) í riðlum og útslætti en spilafyrirkomulag ræðst af fjölda þátttakenda. Keppt verður bæði í karla- og kvennaflokki.  Stefnt er að því að spila svokallað “setplay” í útslætti en nánara fyrirkomulag verður kynnt þegar skráningarfjöldi liggur fyrir. Grand Prix fer fram sunnudaginn 12. mars nk. á Bullseye, Snorrabraut 34.  

Leikir í öllum riðlum hefjast kl. 10:30 en húsið opnar kl. 09:00. Staðfesta þarf skráningu á staðnum amk. 45 mín fyrir upphaf riðlakeppninnar.  

Styrkleikaraðað verður í riðla og verður farið eftir nýjasta meðaltali í NOVIS deildinni líkt og gert var í RIG 2023.

Verðlaunafé (bæði í karla- og kvennaflokki) fyrir fyrsta sæti er 20.000 kr.  Fyrir annað sæti 10.000 kr. og þriðja sæti 5.000 kr.  ATH! Verðlaunafé verður gefið sem inneign hjá ÍPS og má nota uppí kostnað tengdan pílumótum innanlands sem og erlendis.

Skráning & greiðsla

Skráning er hafin og skráningarfrestur er til kl. 18:00, fimmtudaginn 9. mars 2022. Hægt er að skrá sig með því að fylla út formið hér að neðan. Skráning er ekki gild fyrr en búið er að greiða þátttökugjald. Ef þátttökugjald er ekki greitt á réttum tíma bætist við 500 kr. refsigjald.

Þátttökugjald er 4.000 kr. og er eingöngu hægt að millifæra á: Kt. 470385-0819  Reikningsnúmer: 0301-26-014567.  
(Ef þú átt inneign og vilt nýta hana sendu okkur póst á dart@dart.is.)

Reglur um afskráningu í mótum ÍPS, endurgreiðslur og inneignir er hægt að skoða HÉR

Skráningu er lokið

Skráðir keppendur

#Nafn Aðildarfélag
1Matthías Örn FriðrikssonPílufélag Grindavíkur (PG)
2Björn Steinar BrynjólfssonPílufélag Grindavíkur (PG)
3Lukasz KnapikPílukastfélag Reykjavíkur (PFR)
4Axel James WrightPílufélag Grindavíkur (PG)
5Zdenek LipowskiPílukastfélag Reykjavíkur (PFR)
6Brynja HerborgPílukastfélag Reykjavíkur (PFR)
7Árni Ágúst DaníelssonPílufélag Reykjanesbæjar (PR)
8Herbert ViðarssonPílufélag Selfoss (PFS)
9Þorbjörn Óðinn ArnarssonPílufélag Selfoss (PFS)
10Hallgrímur HannessonPílufélag Kópavogs (PFK)
11Steinunn Dagný IngvarsdóttirPílufélag Grindavíkur (PG)
12Harpa NóadóttirPílukastfélag Hafnarfjarðar (PFH)
13Kitta EinarsdóttirPílufélag Reykjanesbæjar (PR)
14Vitor CharruaPílukastfélag Hafnarfjarðar (PFH)
15Alex Máni PéturssonPílufélag Grindavíkur (PG)
16Jón Oddur HjálmtýssonPílukastfélag Skagafjarðar (PKS)
17Pétur Rúðrik GuðmundssonPílufélag Grindavíkur (PG)
18Sandra GuðlaugsdóttirPíludeild Þórs (PÞ)
19Oddur ÓlafssonPílufélag Reykjanesbæjar (PR)
20Arnar Leó ÓlafssonPílukastfélag Reykjavíkur (PFR)
21Alexander Veigar ÞorvaldssonPílufélag Grindavíkur (PG)
22Sara HeimisPílukastfélag Reykjavíkur (PFR)
23Tómas ÓðinssonPílufélag Selfoss (PFS)
24Kári Vagn BirkirssonPílufélag Kópavogs (PFK)
25Haraldur BirgissonPílufélag Kópavogs (PFK)
26Emil Rafn JóhannssonPílukastfélag Reykjavíkur (PFR)
27Sigurður Fannar StefánssonPíludeild Þórs (PÞ)
28Sigurður ÞórissonPíludeild Þórs (PÞ)
29Hörður Þór GuðjónssonPílufélag Grindavíkur (PG)
30Smári HanssonPílufélag Reykjanesbæjar (PR)
31Sumarliði ÁrnasonPílukastfélag Reykjavíkur (PFR)
32Þorgeir GuðmundssonPílukastfélag Reykjavíkur (PFR)
33Hilmar HönnusonPílufélag Grindavíkur (PG)
34Ingi Þór HafdisarsonPílukastfélag Reykjavíkur (PFR)
35Haraldur Björgvin EysteinssonPílufélag Kópavogs (PFK)
36Guðlaugur GústafssonPílufélag Grindavíkur (PG)
37Þorvaldur SigurðssonPílukastfélag Reykjavíkur (PFR)
38orri hjaltalínPílufélag Grindavíkur (PG)
#Nafn Aðildarfélag

Nánar

Dags:
12. mars 2023
Tími:
10:00 - 18:00
Viðburður flokkar:
,

Skipuleggjandi

ÍPS
Email
dart@dart.is
Heimasíða

Staðsetning

Bullseye
Snorrabraut 37
Reykjavík, Austurbær 105 Iceland
+ Google Map
Phone
4546000
Heimasíða